Íslenska landsliðið í TKD með silfur á NM-2012
Nú er Norðurlandamótinu lokið og landsliðin tvö í bardaga og formi á leiðinni heim. Aðdragandinn að mótinu hefur verið langur og æfingar stífar. Landsliðshóparnir ásamt U&E (Ung og Efnileg) hópnum eru að uppskera það sem þau hafa sáð undanfarna mánuði og höfðu árangur sem erfiði. íslenska landsliðið í ólympískum bardaga náði silfri meðal landsliða og er það besti árangur landsliðsins til þessa á Norðurlandamóti. Það mátti ekki miklu muna að Íslenska landsliðið hefði hreppt gullið því þeir keppendur sem fóru í úrslit og töpuðu voru aðeins 1-2 stigum undir. Meisam Rafiei landliðsþjálfari sagði í viðtali við vefinn að liðið sé mjög samheldið og góður liðsandi sé stór þáttur í árangri landsliðsins. Í sparring var einn keppandi með gull en það var hún Ingibjörg Grétarsdóttir.
Keppendur í formi skiluðu miklum árangri en þar má helst nefna Guðrúnu Vilmundardóttur sem hreppti silfur. Í formi er keppt í einstaklings-, para og hópakeppni og hrepptu þær Hulda Rún Jónsdóttir, Hildur Baldursdóttir og Sveinborg Katla Daníelsdóttir silfur í hópaflokki.
Úrslit íslensku landsliðana
Sparring
Viktor Ingi Ágústsson (Afturelding) – Brons
Davíd Pétursson (Selfoss)- Brons
Ástrós Brynjarsdóttir (Keflavík) – Silfur
Jón Steinar Brynjarsson (Keflavík – Brons
Kristín Hrólfsdóttir (Selfoss) – Brons
Ingibjörg Grétarsdóttir (Selfoss) – Gull
Ágúst Kristinn Eðvarðsson (Keflavík) – Silfur
Karel Bergmann Gunnarsson (Keflavík) – Brons
Svanur Þór Mikaelsson (Keflavík) – Brons
Poomsae
Ástrós Brynjarsdóttir (Keflavík) – Brons
Svanur Þór Mikaelsson (Keflavík) – Brons
Írunn Ketilsdóttir (Ármann) – Brons
Guðrún Vilmundardóttir (Selfoss) – Silfur
Hópakeppni í formi (Hildur Baldursóttir, Hulda Rún Jónsdóttir og Sveinborg Katla Daníelsdóttir) – Silfur




Er þetta sænska liði sem lenti í 1. sæti?
Glæsilegur árangur hjá flottu keppendunum okkar:)
En það er vitlaust nafn þarna í upptalningunni. Ágúst Kristinn Eðvarðsson frá Keflavík vann silfur en ekki Ágúst Atli:) Það væri nú skemmtilegra ef það væri rétt:)
Komið :-)
:)
Finska liðið var í 1. aæt, Ísland í 2. og að mig minnir svíþjóð í þriðja, danmörk sendi ekki inn landslið.