Poomse competitions

HomeForumsTaekwondoPoomse competitions

This topic has 3 voices, contains 2 replies, and was last updated by  Sigga Stefania 90 days ago.

Viewing 3 posts - 1 through 3 (of 3 total)
Author Posts
Author Posts
23/01/2012 at 06:05 #2243

eduardo

I thinks is worth considering for the next poomse competitions not to mix high belts with low belts, for example last competition in my sons Gabriel´s group there were 5 blue-red stripe, 1 green and 2 orange belts, the results were gold and bronce orange belt silver blue-red belt. As judge one counts mistakes, One is much more prone to do mistakes as the technical lever raises, we are comparing teaguk IL and I jang to Taeguk Ojang  and Yuk jang. I believe is more fair to have the grups by belts or group od 2 different grades rather than so much difference. I am sure the results had been different if the kids would have competed with simiral poomse, next time we will have blue belts doing I jang just to have more posibilities to win… I dont think this is fair, besides there are enough kids to grup them by belts!
I think we should consider this for the next tournament,
Best regards,
Eduardo…

29/01/2012 at 19:00 #2247
levy
levy
Post count: 20

Ég er sammála þessu með sameininguna. Ég veit ekki hverjir möguleikarnir voru í þessum flokki en ef þetta var gert af nauðsyn þá er erfitt að dæma saman þessi tvö púmse.

Í O jang er dvítkúbí, jopchagi og dvitkoasogí sem er allt annars eðlis heldur en tæknin í fyrstu tveim formunum. Því er erfitt fyrir sama dómarann að dæma jafnt þvert yfir hópinn. Í svartbeltishópnum gera allir sama formið og meiraðsegja í sömu umferð. Þetta auðveldar dómaranum að halda samræmingu í einkunnagjöf. Svo verður að hafa í huga að þetta eru mjög ungir krakkar. Á þessum aldri þá finnst mér að allir ættu að fara heim með verðlaunapening þó það séu margir keppendur í flokknum. Það þarf ekki að hafa áhrif á stigagjöfina.

Hinsvegar er ég ósammála því að “One is more prone to do mistakes as the technical lever raises”. Mistök fylgja oftast of litlum undirbúningi, stressi, einbeitningarleysi eða ef maður hreinlega misstígur sig. Allir iðkendur sitja þar við sama borð. Nema iðkendur með meiri reynslu.

Iðkendur með hærra belti og meiri reynslu gera vissulega flóknari tækni en ættu að vera síður líklegir til að gera mistök því þeir hafa keppt á mun fleiri mótum en iðkendur sem hafa æft í 4 mánuði og eru að gera Taegeuk Iljang í fyrsta skipti á móti.

  • This reply was modified 111 days ago by levy levy.
  • This reply was modified 111 days ago by levy levy.
19/02/2012 at 16:22 #2289

Sigga Stefania
Post count: 1

Til að allt skipulag gangi jafnvel og raun bar vitni þarf að skipta í hópa þannig að þeir sem keppa einugis í sparring séu saman í hóp, þeir sem keppa einungis í poomsae séu saman og þeir sem keppa í báðu séu saman. Í þetta skti voru einungis tveir hópar sem kepptu einungis í poomsae og var þeim krökkum beltaskipt, á meðan þeir sem kepptu í sparring var einnig skipt eftir hæð og þyngd. Skráningin var þannig að helmingur þeirra sem einungis kepptu í poomsae voru með gult belti eða lægra. Hinn helminguri var með appelsínugul til rauð rönd. Er það ástæða þess ad svo mismunandi belti lentu saman í öðrum flokknum. Ef mótin haldast í þessari stærð eða stækka er möguleiki að breyta og halda barnamótið á sér helgi með poomsae annan daginn og sparring hinn. Þá yrði hægt að skipta í jafnari hópa.
Það að auðveldara sé að gera mistök í hærri taegukum er hægt að ræða. Ijang á t.d. Að vera jafnerfiður fyrir appelsínugult belti og ohjang er fyrir rauða rönd. Mikið af mistökum sem verið er að draga niður fyrir eru mistök sem keppandinn er að gera í öllum taegukum, og eru einmitt mörg þeirra einfaldlega vegna stress.
A.m.k. núna í vetur, og eftir minni bestu vitund síðasta vetur, fóru allir krakkar sem tóku þátt á barnamótum á vegum TKÍ (yngri en12) heim með þáttökumedalíur, og er stefnan að halda því áfram.

Viewing 3 posts - 1 through 3 (of 3 total)

You must be logged in to reply to this topic.