Íslandsmeistaramótið í Poomsae 2011 verður haldið þann 29. október. Mótið mun fara fram í íþróttahúsi Ármanns í Laugardal og mótstjóri er Írunn Ketilsdóttir. Nánari upplýsingar koma þegar nær dregur mótinu. ATH! Nýtt mótsfyrirkomulag Mótsfyrirkomulag fyrir lægri belti (5.kup og niður) og börn mun vera óbreytt frá því sem áður var, þ.e. keppendur velja sjálfir
Tveir keppendur í Taekwondo, þeir Björn Þorleifur Þorleifsson og Meisam Rafiei, tóku þátt í æfingabúðum með danska landsliðinu í sparring. Eftir æfingabúðirnar kepptu þeir á sterku opnu móti í Kaupmannahöfn og náðu þeir þeim frábæra árangri að vinna báðir til gullverðlauna í sínum flokkum, auk þess sem Björn var valinn keppandi mótsins fyrir frábæra frammistöðu í sínum
Haldnar verða nokkrar opnar úrtökuæfingar fyrir landsliðið í Kyorugi, í Skelli, bardagalistasal Ármenninga. Allir iðkendur, 14 ára og eldri, blátt belti og hærra(nema með undanþágu frá landsliðsþjálfara) og hafa brennandi áhuga á að taka þátt í bardagamiðuðum æfingum eru velkomnir á úrtökurnar. Ekki þarf að mæta í dobok en mæta í æfingafötum og með ALLAR
Kæru félagar, Sunnudaginn 9. október 2011 fer fram liðamót Ármanns í poomsae. Markmið mótsins er að efla áhuga á poomsae, gefa þeim sem hafa áhuga á tækni tækifæri til að spreyta sig og efla liðsheild. Mótið verður haldið í bardagasalnum Skelli í Íþróttahúsi Ármanns. Mótsgjald er 1000 kr á mann og skráningarfrestur rennur út á
Síðastliðna helgi stóð TKÍ fyrir æfingahelgi með Master Nuno Damaso, 6. dan. Góð mæting var á æfingar og vill stjórn TKÍ þakka öllum þeim sem lögðu leið sína á æfingar hjá þessum frábæra þjálfara. Jafnframt vill stjórnin þakka Taekwondodeild Ármanns fyrir afnot af æfingaaðstöðu og ómetanlega hjálp um helgina.
Næstu vikur verða í boði opnar landsliðsæfingar í Poomsae fyrir þá sem ekki komust á úrtökuhelgina. Fyrst um sinn gildir þetta fyrir 15 ára og eldri. Aðrar úrtökur fyrir U&E liðið verða haldnar seinna í vetur. Opnu æfingarnar eru á miðvikudögum klukkan 19:00 í æfingahúsnæði ÍR, Skógarseli.
Um helgina stendur TKÍ fyrir æfingahelgi með TTU meistaranum Nuno Damaso, 6. dan. Æfingar verða í æfingahúsnæði Ármanns í Laugardalnum. Dagskrá helgarinnar er svohljóðandi. Föstudagur: 18:00-19:00 Börn 19:00-20:30 Allir fullorðnir Laugardagur: 10:00-11:00 Börn 11:00-12:00 Hádegismatur 12:00-13:00 Börn 13:00-14:15 Fullorðnir lægri belti 14:30-16:00 Fullorðnir hærri belti 16:30-18:00 Allir fullorðnir 19:30+ Út að borða
Úrtökuæfingarnar verða haldnar í æfingahúsnæði Ármanns að Laugabóli helgina 10. og 11. september. Valið verður í A og B landslið fyrir junior og senior (15 ára+). Einnig verður valið í U&E hóp. Aldurstakmark fyrir U&E er 10 ára og beltalágmark fyrir alla hópa er 6. kup (blátt belti). Dagskrá: Laugardagur 10.09 13:15
TKÍ óskar eftir félagi/félögum til að sjá um mótshald Íslandsmeistaramótsins í Poomse. Áætluð tímasetning er 29. október en 22. október kemur einnig til greina. Mótshaldari útvegar eftirfarandi hluti: Húsnæði fyrir mótið Mótsstjóra Dómarar Keppnisgólf Verðlaunagripi og medalíur Dómarar: TKÍ mund útvega erlendan yfirdómara. Félög eru skyldug til að senda 1 dómara fyrir allt að
Formannafundur 1. Kynning á vefsíðu 2. Dagskrá vetrarins mót/viðburðir 3. Kynning á stöðu mála varðandi rafbrynjur og styrktarsamninga við DaeDo og BudoNord 4. Verklagsreglur varðandi dan gráðanir 5. Úrtökur í landslið Poomsae og Sparring (landsliðsæfingar) 6. Mótanefnd 7. Reglugerð varðandi félagaskipti og keppnisleyfi 8. Önnur mál